|
myndir...með smá bulli myndasíða með smá bullívafi |
|
20.12.2011 16:04Adam Eftir nána íhugun held ég að Adam hinn fyrsti hafi átt í alvarlegri krísu. Eva var jú af honum komin og þar með dóttir hans, en jafnframt maki hans sem þýðir að hann var tengdapabbi sjálfs síns. Einnig var hann náttúrulega þar með orðinn afi barna sinna. Þessi börn hafa neyðst til að eiga börn með hvort öðru þannig að A og E voru bæði foreldrar og tengdaforeldrar þeirra. Ef hinsvegar A á barn með dóttir sinni þá er E amma barnsins og systir sem gerir A að mági sjálf síns. Nei þetta er ekki að gera sig, sný mér frekar að fullum goðum. Skrifað af Raggi 02.12.2011 23:08staðreyndirFullnæging svína stendur í 30 mín ( ég vil vera svín í næsta lífi) EN hvernig komust menn að þessu og af hverju!!! Ísbirnir eru örvhentir. ... (Hver vissi það..? Hverjum er ekki sama...? hvernig fundu menn það út ? og táknar það að þeir lifa skemur?) Leirgedda (það er fiskur) er með 27,000 bragðkirtla. (Hvað í ósköpunum getur verið svona bragðgott neðst í vatninu) Flóin getur stokkið 350 falda lengd sína, það svipað og maðurinn stökkvi yfir fótboltavöll. ( enn 30 mínútur ímyndaðu þér og af hverju svín) Sum ljón eðla sig 50 sinnum á dag (ég vill samt verða svín í næst lífi .. gæði fram yfir magn...) Fiðrildi eru með bragðlaukana á fótunum (ojjjjjjj) (það er næstum eins slæmt og Leirgeddan) Augu strútsins er stærra en heilinn (Ég þekki svoleiðis fólk.) Stjörnufiskar hafa engan heila. (Ég þekki svoleiðis fólk líka.) Eftir að hafa lesið þetta er það eina sem ég get sagt er Svín eru heppinn... jú og ljónin líka. : ) Skrifað af Raggi 17.11.2011 12:26laufabrauðLaufabrauðsdagurinn 2011 Laugardaginn 26. nóvember nk. stendur foreldrafélag Lindaskóla fyrir laufabrauðsgerð í skólanum frá kl. 10 - 14. Laufabrauðið verður selt á staðnum, þið skerið það út og sérstakir steikingameistarar sjá um steikinguna. Að vanda verða nemendur 10. bekkjar með veitingar til sölu, heitt kakó og meðlæti. Vonumst til að sjá sem flesta, unga sem aldna, og eiga saman notalega stund við jólaundirbúninginn. Taka þarf með: skurðarbretti, box undir laufabrauðið og vasahnífa eða laufabrauðsjárn. Verð : 5 kökur 500 kr 10 kökur 800 kr 15 kökur 1.200 kr 20 kökur 1.500 kr Skrifað af Raggi 06.11.2011 21:03ÓtitlaðÁsatrúÁsatrú eða heiðinn siður byggir á umburðarlyndi, heiðarleika, drengskap og virðingu fyrir náttúrunni og öllu lífi. Eitt megininntak siðarins er að hver maður sé ábyrgur fyrir sjálfum sér og gerðum sínum. Ì Hávamálum er einkum að finna siðareglur Ásatrúarmanna. Heimsmynd ásatrúarmanna er að finna í Völuspá. Þar er sköpunarsögunni lýst, þróun heimsins, endalokum hans og nýju upphafi. Ì trúarlegum efnum hafa ásatrúarmenn aðallega hliðsjón af hinum fornu Eddum. (sótt inn á asatru.is) Skrifað af Raggi Flettingar í dag: 12 Gestir í dag: 4 Flettingar í gær: 17 Gestir í gær: 5 Samtals flettingar: 27179 Samtals gestir: 8859 Tölur uppfærðar: 28.1.2012 11:26:17 |
Vafraðu umEldra efni Tenglar |